Myndin í myndagátu 10 er af frægustu rauðu sandöldunni í Namibíu sem er nánast skyldumæting á ef farið er til Namibíu. Hún er í Sossusvlei, norður af Swakopmund, vinsælum sumarleyfis- og strandstað og er yfirleitt bara kölluð Alda 45 (Dune 45) en nafnið er dregið af því að aldan er 45 kílómetra frá Sesriem gljúfrinu.
Aldan stendur 170 metra upp úr umhverfinu og er úr 5 milljón ára gömlum sandi sem Appelsínu áin (Orange River) hefur sorfið úr berginu og vindurinn blásið upp.
Fegurð svæðisins og litirnir þykja njóta sín best við sólarupprás. Myndin er af Flickr og er tekin af jhen6550. Einungis tveir voru með rétt svar við þessari gátu og er vinningshafinn að þessu sinni Guðmundur Gunnlaugsson og fær hann mat fyrir tvo á veitingastaðnum Eldhrímni.

Hjörtur
ps. munið að gerast fans á facebook eða áskrifendur á twitter til að fá tilboð, verðlaunagátur og áhugaverðar ferðasögur :)