Þeir sem horfðu á Superbowl tóku eflaust eftir atriðinu með Madonnu þar sem magnaður línudansari sýndi ótrúlega takta á línunni í atriðinu hennar. Margir hafa verið að velta fyrir sér hver þetta hafi verið. Hann heitir Andy Lewis og svo virðist vera sem það vanti í hann lofthræðslugenið. Hér er myndband af honum við æfingar, meðal annars í Grand Canyon.
Margir hugsa sig tvisvar um hvort þeir eigi að halda til Egyptalands eins og ástandið er þar í dag. En hvernig er ástandið í Egyptalandi í dag?
Ég fékk þetta myndband frá ferðamanni í Luxor sem rakst á egypska herinn á miðvikudaginn:
Aðeins annað en það sem við sjáum í fjölmiðlum. Þar sjáum við myndir af blóðugum átökum á götum Alexandríu og á Tahrir torgi í Kaíró. Þetta eru vissulega fjölmenn átök, enda gríðarlega þýðingarmikil fyrir þjóðina á þeim umbrotatímum sem hún er að ganga í gegnum. En þau eiga sér stað á mjög einangruðum stöðum sem auðvelt er að forðast. Ferðamenn eru jafn öruggir annars staðar í Egyptalandi og vanalega og ef eitthvað, er betri tími til að fara til Egyptalands en oft áður þar sem hægt er að fá góða díla þessa dagana!
Cristoph Rehage ákvað að ganga frá Peking og heim til Þýskalands. Hann komst aldrei alla leið, en gekk í heilt ár og var kominn til Urumqi, næstum 5.000 km leið sem lá meðal annars yfir Gobi eyðimörkinni.
Hann ákvað að skerða hvorki hár né skegg allan tímann og í myndbandinum fylgjumst við með honum og skeggvextinum á leiðinni. Myndbandið hefur unnið til fjölda verðlauna á heimildamyndahátíðum.
Í myndbandinu má sjá Cristoph stundum í flugvél eða bíl en um er að ræða frí frá göngunni sem hann þurfti að taka sér, meðal annars til að ganga frá VISA málum í Peking. Sjálfa gönguleiðina gekk hann alla. Cristoph er með heimasíðu sem heitir TheLongestWay.com þar sem ferðasagan er rakin ýtarlega.
Þeir eru margir forvitnilegir götulistamennirnir sem maður rekst á í borgum heimsins. Þessi hæfileikaríki tónlistarmaður var á torgi í Bratislava í Slóvakíu og spilaði þar tónverk á vínglös sem voru hálffyllt vatni.
Ólöglegir innflytjendur eru Bandaríkjamönnum mikill hausverkur og hefur ríkisstjórnin því gripið til sinna ráð. Lausnin sem þeir töldu vænlegast var að reisa háa girðingu eftir öllum landamærunum - svona sína útgáfu af Kínamúrnum.
Tvær ungar stúlkur ákváðu að kanna hversu góð vörn þessi girðing væri og hér er útkoman:
Þessi girðing hefur kostað yfir 4 milljónir dollara nú þegar og er ætlað að hún muni kosta 6,5 milljónir dollara til viðbótar á næstu 20 árum.
Það hefur sjaldnast verið varanleg lausn að reisa múra. Það sem þessar stúlkur eru að reyna að gera er að vekja athygli á því að kannski séu til betri lausnir á vandanum en að reisa múr og þær spyrja sig hvort hverjum dollar væri ekki betur varið í fjárfestingar sunnan landamæranna til að minnka fátækt og minnka ásóknina í að komast yfir.
Johnny Jet fór í ökuferð á dögunum í The Empty Box, gróðursnauðri eyðimörk í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þar er að finna allt að 300 metra háar sandöldur sem býður óneitanlega upp á skemmtilegan sandakstur. Hér er myndbandið úr ferðinni:
Arctic Trucks gæti nú eflaust gert bílinn þeirra aðeins skemmtilegri ;)
Standard hótelinu í kjötpökkunarhverfinu í New York var breytt í "kaleidoscope hótel" á dögunum í tilefni af The Kaleidoscopic Fashion Spectacular tískusýningunni. Tekin voru 155 herbergi á suðurhlið hótelsins undir verkefnið og sett upp LED-lýsing í þeim öllum. Síðan dönsuðu ljósin í takt við tónlistina auk þess sem sjá mátti dansara taka þátt inn í herbergjunum:
JD skellti sér í bakpokaferðalag í tvær vikur til Evrópu. Það átti eftir að verða lærdómsrík ferð, ekki vegna þess sem hann upplifði í ferðinni, heldur vegna þess sem beið hans þegar hann kom heim:
Þannig að vertu viss um að kærastan viti að þú sért að fara - og tékkaðu á símanum þínum og póstinum annað slagið í ferðinni ;)
Í Ladakh í Himalayafjöllum er að finna Segulfjallið, fjall sem sigrast á þyngdarlögmálinu. Krafturinn er svo mikill að bílar færast upp brekkuna þrátt fyrir að vera ekki í gangi og geta náð allt að 20 km/klst. Einnig er sagt að togkraftur fjallsins finnist þegar flogið er yfir og er fljúgandi farartækjum ráðlagt að halda ákveðinni hæð og hraða til að lenda ekki í vandræðum.
Ef þú vilt prófa að upplifa áhrif fjallsins, þá er það staðsett um 30 km frá Leh, á Leh-Kargil-Baltik þjóðveginum í um 4.600 metra hæð. Fjallið er orðið vinsæll áfangastaður í dag en skammt frá fjallinu er helgur staður þar sem indverski gúrúinn Nanak Dev, upphafsmaður Shikisma, hugleiddi á 17. öld.
Skammt frá er annar merkur vegur, hæsti fjallvegur í heimi sem er í yfir 6.000 metra hæð. Hér borgar sig að fara í engu óðslega eða fólk á á hættu að fá háfjallaveiki.
Hér má sjá myndband af bifreið sem togast upp brekkuna í átt að Segulfjallinu: