Ég ætla ekki að gefa neitt upp um mynd dagsins. En það sem ég vil fá að vita er frá hvaða borg þessi mynd og ekki bara það, heldur vil ég líka fá nafnið á turninum sem sést í bakgrunninum. Ég mun svo að vanda draga úr réttum lausnum einn vinningshafa sem fær mat fyrir tvo á veitingastaðnum Eldhrímni. Þú getur póstað svarinu hér, inn á Facebook eða á twitter.
Myndin sjálf er full af vísbendingum. Þú getur smellt á hana til að sjá hana í betri upplausn.
Aukaspurning: Ef þú getur sagt mér nákvæmlega á hvaða gatnamótum ljósmyndarinn stendur, þá færðu mat fyrir tvo á Eldhrímni. En ekki skrifa svarið við aukaspurningunni hér, sendu mér það á netfangið hjortur (at) scope . is eða sem message/DM á Facebook eða twitter.
Gangi ykkur vel
Hjörtur
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fylgjast með nýjum gátum og uppfærslum.