Við sem ferðumst höfum eflaust flest núorðið prófað GPS tæki og vitum hvað það getur verið þægilegt að aka eftir þeim. En GPS tæki framtíðarinnar munu væntanlega flest búa yfir tækni sem kallast Augmented Reality. Þá greinir tækið umhverfið með myndavél og getur þannig sýnt þér og sagt hvað er hvað.
Við skulum líta á nokkur dæmi um hvernig augmented reality getur virkað en nú þegar er hægt að fá leiðsöguhugbúnað fyrir iPhone og G1 símann sem byggir á augmented reality. Fyrra dæmið er iPhone sem er notaður sem GPS leiðsögutæki:
En augmented reality hjálpar þér ekki bara að komast á staðinn, heldur veitir tækið líka upplýsingar um það sem fyrir "augu" ber á staðnum:
Wikitude sækir upplýsingarnar um það sem myndavélin sér á wikipedia og notar GPS hnitin til að staðsetja myndvélina. Þetta eru ekki bara túrista upplýsingar eða sagnfræði, heldur geta þetta verið ýmis konar upplýsingar um veitingastaði, þjónustu, tilboð, arkitektúr og í raun hvað sem er. Svona hugbúnaður ætti líka að geta greint plöntur og sagt frá þeim, sagt þér hvort að sveppur sé ætur eða ekki o.s.frv. Fólk ætti því ekki að þurfa að missa af neinu merkilegu þar sem það er statt á ferðalaginu.
Hjörtur
ps. munið að gerast fans á facebook eða áskrifendur á twitter
