Ólöglegir innflytjendur eru Bandaríkjamönnum mikill hausverkur og hefur ríkisstjórnin því gripið til sinna ráð. Lausnin sem þeir töldu vænlegast var að reisa háa girðingu eftir öllum landamærunum - svona sína útgáfu af Kínamúrnum.
Tvær ungar stúlkur ákváðu að kanna hversu góð vörn þessi girðing væri og hér er útkoman:
Þessi girðing hefur kostað yfir 4 milljónir dollara nú þegar og er ætlað að hún muni kosta 6,5 milljónir dollara til viðbótar á næstu 20 árum.
Það hefur sjaldnast verið varanleg lausn að reisa múra. Það sem þessar stúlkur eru að reyna að gera er að vekja athygli á því að kannski séu til betri lausnir á vandanum en að reisa múr og þær spyrja sig hvort hverjum dollar væri ekki betur varið í fjárfestingar sunnan landamæranna til að minnka fátækt og minnka ásóknina í að komast yfir.
Hér er hægt að fræðast meira um "The other SIde Of Immigration" verkefnið.
Með ósk um farsæla og löglega landamæraþverun :)
Hjörtur
