Hótel og gististaðir eru náttúrulega til í öllum verðklössum og af mismiklum gæðum. Þegar verðið er aðalatriðið, þá er Hostel World líklegast besta leitar- og bókunarvélin og bíður upp á gríðarlegt úrval af ódýrri gistingu á hostelum og ódýrum hótelum sem hægt er að bóka beint í gegnum netið.
Hostel World sérhæfir sig í bókunum á hostelum og "budget" hótelum um allan heim. Þegar þið leitið í leitarvélinni (sem er hér til vinstri) fáið þið niðurstöðurnar sem lista af gististöðum og verð per nótt. Verðin eru allt frá 20 dollurum (alla vega sem ég gat fundið í fljótu bragði). Athugið að yfirleitt stendur "dorms" eða "private". Dorms eru svefnskálar eða kojur í herbergjum sem deilt er með öðrum. Private eru herbergi sem ekki er deilt með öðrum. Verið viss um að þið séuð að bóka það sem þið eruð að leita að.
Reviews
Nýtið ykkur þau reviews sem eru til um gististaðina og lesið þau áður en þið bókið gistingu. Er eitthvað neikvætt sagt sem myndi trufla ykkur? Fær það sem skiptir ykkur máli jákvæða umsögn? Þið getið séð hversu mörg reviews hver og einn hefur skrifað. Þeim mun fleiri sem viðkomandi hefur skrifað, þeim mun áreiðanlegri eru reviews frá viðkomandi.
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Sem dæmi um hvers má vænta ef leitað er í Kaupmannahöfn eru annars vegar dönsku hostelin með verðum frá 30 dollurum og hins vegar hótel á borð við Absalon, Saga Hotel, Cab-inn hótelin og fleiri, mörg hver staðsett alveg við lestarstöðina. Það hefur verið erfitt að bóka gistingu á góðu verði í Kaupmannahöfn eins og gengið er núna, en vonandi verður Hostel World leitar- og bókunarvélin á vidskiptaferdir.is góð viðbót og gott tól í þeirri leit.
Hjörtur
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fá skemmtilegar greinar og ómótstæðileg tilboð ==> :)
