Á torginu Plaza de Callao í Madrid á Spáni hefur risið nýstárlegt 5 herbergja hótel og annað eins rusl hótel hefur ekki sést í hótelbransanum. Þetta er hótel sem vakið hefur mikla athygli en þó dregið að sér fá viðskiptavini, enda það í raun ekki tilgangurinn. Hótelið er búið til úr rusli og kallast "Beach Garbage Hotel".
Hótelið er innsetning eftir þýska listamanninn Ha Schultz og er markmiðið að vekja athygli á öllu því magni af rusli sem berst á haf út frá ströndunum. Hráefnið í smíði hótelsins er 12 tonn af rusli sem safnað var á ströndum Ítalíu, Spánar, Frakklands og Belgíu. Hótelinu er einungis ætlað að standa á meðan alþjóðleg ferðaráðstefna stendur yfir í Madrid og því engin ástæða til að slást um herbergin.
Hjörtur
ps. Fylgist með á Facebook til að fá skemmtilegar sögur, leiki og góð ferðatilboð :)







