Þann 24. október var sólin kvödd í Qaanaaq þar sem hún hvarf niður fyrir sjóndeildarhringinn í síðasta sinn á þessu ári. Það munu líða 117 dagar þar til sólin kemur upp aftur í Qaanaaq, sem eins og þið hafið kannski getið ykkur til, liggur norðarlega á Grænlandi. Sólarupprás verður 17. febrúar.
Sólin er kvödd með virktum og bæjarbúar koma saman og syngja henni til heiðurs. Nú er formlega kominn vetur í Qaanaaq. Þó er enn lítill snjór og veiðimennirnir geta enn siglt um á bátum sínum.
Hér á Íslandi eru þó nokkur þorp þar sem ekki sést til sólar svo mánuðum skiptir á veturna. Þar má nefna til dæmis Bíldudal þar sem undirritaður ólst upp og ekki sést til sólar frá nóvember og fram í febrúar þegar komu sólarinnar er fagnað með pönnukökum og kakói á sólarkaffi. Þar eru það há fjöll sem valda hinu langa sólarleysi, meira en norðlæg lega.
Hjörtur
Myndin er tekin af Dan Normann og birtist í Sermitsiaq.gl
