Myndin í síðustu myndagátu reyndist mönnum erfið, enda lítið um kennileiti. En vel er að gáð má sjá að á turninum sem gnæfir yfir gröfunum er ólympíumerkið. Þetta svæði var ekki útbúið sem grafreitur. Þetta er ólympíuleikvangurinn í Sarajevo í Bosníu. Leikvangurinn var aðsetur vetrarólympíuleikanna 1984.
Í Júgóslavíu stríðinu umkringdi serbneski herinn borgina. Úr hæðunum í kring gerði herinn árásir með stórskotaliði, skriðdrekum, leyniskyttum og öðrum vopnum. Umsátrið er það lengsta í seinni tíma og stóð frá 5. apríl 1992 til 29. febrúar 1996. 10.000 manns voru myrtir, þar af 1.500 börn. 56.000 manns voru særðir, þar af 15.000 börn. Enginn var óhultur fyrir árásum Serbneska hersins, hvorki heima, í skólum né á sjúkrahúsum. Kirkjugarðar inn í borginni urðu fljótt yfirfulllir og því var gripið til þess ráðs að grafa hina látnu á ólympíu leikvanginum. Það er gríðarlega áhrifamikið að labba um leikvanginn með olympíu merkið, sameiningartáknið, á turninum en um allt eru grafir. Flestar þeirra eru frá árinu 1993 og nánast allir hinna látnu eru ungt fólk, tvítugt, þrítugt og börn og unglingar. Og þetta er ekki eitthvað sem gerðist á miðöldum, þetta eru atburðir sem gerðust hér í Evrópu fyrir aðeins örfáum árum. Sjálfur var ég á hinum stríðshrjáðu svæðum aðeins mánuði seinna, en þó ekki í Sarajevo.
Myndina tók ég árið 2004, 8 árum eftir stríð. Þá var borgin enn í rúst með hálfbrunnin og hálfhrunin hús á hverju horni. Það var sorglegt að sjá sömu þorpin eftir átta ár, þar sem ekkert hafði breyst. Brunnin bílflök enn á sama stað, sömu rifnu gluggatjöldin enn blaktandi út úm brotnar rúður. Stríðið er ekki búið þó að stríðinu sé hætt.
Vinningshafinn í myndagátunni að þessu sinni svaraði henni á twitter en það var Eiríkur Jónsson. Hann fær mat fyrir tvo á veitingastaðnum Eldhrímni í Borgartúni og óska ég honum til hamingju með það.
Hjörtur
ps. munið að gerast fans á Facebook til að fylgjast með nýjum gátum og uppfærslum.