Flugfélögum virðist vera illa við ferðalanga með farangur. Þú mátt bara vera með visst margar töskur. Þær mega bara vega visst mikið. Þær verða að komast ofan í einhvern ramma til að það megi taka þær í handfarangur. Þær eru skannaðar, hnusaðar og þú þarft að í mörgum tilfellum í dag að kaupa "flugsæti" fyrir farangurstöskurnar þínar. Samt geturðu ekki treyst á að töskurnar þínar verði sendar á sama stað og þú.
Erich Schuttauf, formaður AANR, er með lausnina á þessu. Í sumar skaltu fara á nektarnýlendu. Engin óþarfa föt eða farangur. Sólgleraugu, sandalar og sólarvörn og þú ert klár í sumarleyfið. Allt kemst þetta fyrir í lítilli snyrtitösku.
Ég myndi samt ráðleggja ykkur að finna einhverja lappa til að vera í meðan farið er í gegnum flugvellina. Þó að tollararnir séu að reyna að sjá í gegnum fötin ykkar, er ég ekki viss um að þeir verði auðveldari viðfangs séuð þið án fata :)
Góða ferð
Hjörtur
ps. munið að gerast fans á facebook eða áskrifendur á twitter til að fá tilboð, verðlaunagátur og áhugaverðar ferðasögur :)
