Þessi póstur er frá Nellie Huang, ferðabloggara sem segir frá ævintýraferðum sínum um heiminn á Wild Junket ferðablogginu. Hún tók saman 8 bestu strendur Evrópu að sínu mati og þær koma hér:
1. Navagio Beach – Zakynthos, Grikklandi
Einnig þekkt sem Shipwreck Bay eða Skipbrotsflói þá er þessi vogur kennimark eyjarinnar og einn sá þekktasti í Grikklandi. Gríðarstórir klettar umlykja hvíta sanda og skapa þessa paradísarstemningu. Það er einungis hægt að komast þangað á bát en siglt er frá Porto Vromi. Grikklandi er einn af vinsælustu sumarleyfisstöðum Evrópu þannig að best er að fara í apríl eða september.
2. Playa Papagayo – Lanzarote, SpániNáttúrulegur samhljómur hinnar afskekktu víkur og hinnar ósnortnu strandar er eitthvað sem erfitt er að nálgast nema með því að þræða lélega vegarslóða eða ganga - sem er líklega ástæðan fyrir því að það hefur haldið sínum einstöku eiginleikum. Kristaltær sjórinn og óteljandi gönguleiðir eftir bjargbrúnunum gera þessa kyrrlátu strönd eina þá bestu í Lanzarote og í landinu öllu.
3. Zlatni Rat – Brač, KróatíuÞessi V-laga gyllta steinaströnd er ein sú magnaðasta við Adríahafið. Zlatni Rat, sem þýðir Gyllta Hornið, er einstakt landfræðilegt fyrirbæri. Ströndin breytir lögun og legu eftir vindinum, ótrúlegt fyrirbæri sem enginn má láta fram hjá sér fara. Við ströndina er furulundur og í honum er að finna rústir fornrar rómverskrar villu með sundlaug.
4. Cala Tarida – Ibiza, SpániGleymdu partýliðinu. Á Ibiza finnast sumar af náttúrulegustu og fallegustu ströndum Evrópu, vel geymdar á bakvið sandsteinskletta. Það er fjöldi af skemmtilegum klettum sem hægt er að synda út í til að njóta þess að baða sig í sólskininu í friði eða fyrir þá sem hugaðri eru, til að spreyta sig á klettadýfingum. Þær geta þó verið hættulegar. Ibiza er frábær áfangastaður fyrir einhleypa með fjörugt og litskrúðugt næturlíf og ótal tækifærum til að kynnast nýju fólki.

5. Sagres – Algarve, PortúgalÞessi hluti Portúgal teygir sig fleiri, fleiri kílómetra með mikilfenglegu landslagi, bröttum klettum, sandsteinsdröngum og vatnslituðum sjó. Á vestri endanum gnæfir hvítt virki yfir ósnertum ströndum, klettóttu landslagi og laðar að brimbrettagæja hvaðanæva að úr heiminum. Þetta er minn uppáhaldsstaður á Portúgal.
6. Las Islas Cies – Galicia, SpániGuardian valdi þessa sem eina bestu strönd í heimi með hvíta sandströndina eins pollrólega og kyrrláta tjörn. Hin fagra villa eya Islas Cies er verndarsvæði og þjóðgarður þar sem fjöldi ferðamanna sem fá að heimsækja eynna er takmarkaður. Eina gistingin sem er í boði er tjaldgisting sem lágmarkar áhrif mannfólksins á eynna. Þetta er ein af mínum uppáhalds.
7. Patara – Turquoise Coast, TyrklandiÖldur, öldur og aftur öldur. Og þá á ég við sandöldur. Þessi einstaka strönd stendur við hinar miklu gylltu sandöldur og Taurus fjöllin. Vegna strangrar verndarstefnu eru engar byggingar neins staðar í kring þannig að strönd er enn ósnortin. Ströndin er ein af örfáum ströndum heims þar sem Loggerhead skjaldbökurnar koma enn til að leggja egg sín á tímabilinu frá Maí til Október. Allt umhverfið gerir þessa strönd að frábærum stað fyrir ævintýraferðir.
8. Spiaggia Sabbie Nere – Sikiley, ÍtalíuEldfjallaströnd ólík öllum öðrum, þá er strönd hinna svörtu sanda sú besta á Aeolian skaganum. Með svörtum grófum eldfjallasandi verður Spiaggia Sabbie Nere einstök strandarupplifun og eitthvað til að segja fólkinu heima frá. Hún er við Porto di Ponente, á hinum enda eyjarinnar - rólegum, kyrrlátum stað þar sem hægt er að slappa algjörlega af.
Nellie Huang
(8 of the best beaches in Europe)
ps. munið að gerast fans á facebook eða áskrifendur á twitter til að fá tilboð, verðlaunagátur og áhugaverðar ferðasögur :)
