Í kvöld fara ýmsar óvættir á kreik, bæði hér heima og erlendis, því komið er að hrekkjavöku og því vissara að hafa allar ferðatryggingarnar á hreinu.
Lowfares.com (þar sem hægt er að finna ódýr flugfargjöld) hefur tekið saman lista yfir 13 áfangastaði í Bandaríkjunum þar sem þú getur átt von á að mæta afturgöngum og draugagangi.
13. Bachelor's Grove kirkjugarðurinn
Bachelor's Grove kirkjugarðurinn í Chicagoland hefur hundruðir frásagna af yfirskilvitlegum atburðum, allt frá draugaljósum til torkennilegra radda, upptaka af undarlegum hljóðum og sögum af undarlegum verum sem sést hafa á sveimi. Ekki skemmir fyrir stemningunni að kirkjugarðurinn er allur í vanrækslu og gróðurinn vaxinn yfir stokka og steina (eða ætti maður að segja krossa og steina). Garðurinn hefur í gegnum tíðina þótt ákjósanlegur staður fyrir morðinga og misyndismenn til að fela lík, iðka svartagaldur og skemmdarfýsn. Margar myndir eru til af hinum framliðnu sem ráfa um garðinn og margar sögur fara af gömlum manni á hesti, bóndabæ sem gufar upp og ljóskúlum sem ferðast eftir malarveginum sem liggur að kirkjugarðinum. Í garðinum er líka hin viðsjálverða "Hvíta kona" sem vafrar um garðinn með ungabarn í örmum sínum. Næsti flugvöllur er Midway Airport.
12. Vitinn í St. Augustine í Florida
Í þessum elsta bæ Bandaríkjanna stendur viti sem reistur var árið 1874 og hefur verið vettvangur nokkurra skelfilegra andláta, þar á meðal þriggja ungra stúlkna sem drukknuðu þegar þær voru leika sér í litlum lestarvagni sem notaður hafði verið við byggingu vitans. Stúlkurnar sem drukknuðu árið 1873 sjást enn þann dag í dag á sveimi. Þær eiga það til að leiða gesti í gildru sem koma að skoða vita. Þú gætir líka rekist á "Bláklædda manninn" í húsi vitavarðarins, en það er landeigandinn sem var þvingaður til að láta landið af hendi fyrir vitabygginguna og kraumar enn af reiði. Annar maður hefur sést ganga í gegnum vitann og enn einn sést stundum safna vatnskútum í kjallaranum auk þess sem ýmis undarleg hljóð, fótatak og raddir heyrast og skuggar hafa sést á sveimi. Reyndar eru fleiri staðir þar sem reimt er í þessum gamla bæ, þar á meðal í gamla fangelsinu sem ég mæli eindregið með að fólk heimsæki sem leggur leið sína til St. Augustine. St. Augustine er í um tveggja tíma aksturs fjarlægð frá Orlando upp með Atlantshafströndinni.
11. Winchester Mystery House í San Jose í Kalíforníu
Þetta undarlega sveitasetur var byggt fyrir erfingja Winchester riffla framleiðandans og er ofsótt af öndum þeirra sem fallið hafa fyrir afurðum fjölskyldunnar. Hún sagði sjálf að það væru þessir andar sem hefðu átt þátt í ótímabærum dauða eiginsmanns hennar og barn. Álög fylgdu fjölskyldunni. Miðill ráðlagði henni því að byggja hús sem væri svo stórt að það gæti hýst anda allra þeirra sem fallið hefðu fyrir Winchester rifflum auk þess að vera með rými fyrir hana sjálfa þar sem hún gæti verið í friði. Næstu 38 árin unnu verkamenn að byggingu hússins sem þegar því var lokið var með yfir 700 herbergi. Það eitt og sér er næg ástæða til þess að berja húsið augum en auk þess eru frásagnir af ótal draugum, undarlegum röddum, skellum og líkamningum. Öll leynigöngin, gervihurðirnar og stigarnir sem liggja ekki neitt auka enn frekar á dulúð og undarlegheit hússins.
10. Alcatraz, San Fransisco, Kalíforníu
Það þarf nú vart að kynna Alcatraz fangelsið, eitt alræmdasta fangelsi veraldar. Hér voru harðsvíruðstu glæpamenn Bandaríkjanna geymdir á fyrri hluta 20. aldarinnar eins og Al Capone og "vélbyssu Kelly" og áttu litla von um að losna nokkurn tímann, og enn minni von um að geta strokið. Áður en fangelsið var byggt voru sagnir meðal frumbyggja um eyjan væri bústaður illra anda. Í dag fara sögur af reimleikum og draugagangi í gamla fangavarðahúsinu, álmu C, spítalanum, þvottahúsinu og síðast en ekki síst, í einangrunarklefunum í álmu D.
9. Hvíta húsið, Washington DC.
Hvíta húsið þekkja allir, en færri hafa kannski heyrt sögurnar af reimleikum í húsinu. Nokkrir fyrrum forsetar eru sagðir ganga þar aftur og þekktastur þeirra er Abraham Lincoln, og jafnframt sá sem oftast sést. Hann heldur mest til í gamla svefnherberginu sínu. Á loftinu heldur Harrison forseti sig og hefur oft heyrst í honum með skarkala þar. Abigail Adams hefur sést á göngum húsins, Dolly Madison birtist í rósagarðinum og hinn ungi Willie Lincoln sást ekki bara, heldur talaði við sjálfan Ulysses S. Grant forseta. Meðal þeirra sem greint hafa frá reimleikum í húsinu er ekki ómerkari einstaklingar en Hillary Rodham Clinton, Harry Truman forseti, Theodore Roosevelt forseti og Jacqueline Kennedy. Þannig að ef þið eigið leið um hvíta húsið, hafið þá líka augun opin fyrir forsetum liðinna tíma sem enn eru þar á ferli.
8. Whaley húsið í San Diego, Kalíforníu
Í gamla bænum í San Diego er Whaley húsið, sem hefur oft verið nefnt sem það hús sem mestur draugagangur er í, í Bandaríkjunum. Húsið er frá 1857 og ber nafn fyrsta eiganda síns og var reist að hluta til ofan á gömlum kirkjugarði. Hinn gamli Whaley gengur aftur í húsinu auk óþekktrar konu, ungrar dóttur Whaleys, sonur á unga aldri, lítil stúlka sem bjó í næsta húsi og hengdi sig fyrir slysni í þvottasnúru og meira að segja hundur herra Whaleys gengur aftur í húsinu. Meðal þeirra viðburða sem sagt hefur verið frá eru hurðir og gluggar sem opnast á óútskýrðan hátt, kaldir blettir, undarleg hljóð, dularfull ljós, vindlareykur, fótatak, hlutir sem hreyfast og líkamningar. Hin unga dóttir Whaleys hefur birst svo skýrt að margir hafa talið sig vera að sjá lifandi barn að leik. Hús Whaleys er í miðjum gamla bænum og ætti að vera skyldustopp ef þú ferð til San Diego.
7. The Lemp Mansion í St. Louis
Hin undarlega, en ríka Lemp fjölskylda lét reisa þetta mikla hús árið 1860. Fjölskyldan sjálf útrýmdi sjálfri sér með röð sjálfsmorða. Frá árinu 1970 hefur verið veitingastaður og gistiheimili í húsinu sem gerir það kannski að einum af áhugaverðari stöðunum í þessari upptalningu. Óútskýrðir atburðir gerast mjög reglulega og skjóta bæði starfsfólki og gestum skelk í bringu. Ef þú hefur magann í að gista þarna, hafðu í huga að skráðar hafa verið hundruðir uppákoma sem ekki hefur tekist að útskýra með eðlilegum hætti. Þar má nefna vofur, hurðir sem læsast, kerti sem kviknar á og glös sem skella í gólfið og brotna í þúsund mola. Charles Lemp og Lillian Lemp ganga bæði aftur í húsinu sem þau létu reisa fyrir 150 árum síðan og það er betra að styggja ekki þessháttar gestgjafa.
6. Eastern State Penitentiary, Pennsilvanya
Eastern State Penitentiary er fangelsi í borg hinnar bróðurlegu ástar - the City of Brotherly Love, í Pennsilvaníu. Það var reistárið 1829 í Gotneskum stíl og þangað var troðið hættulegum glæpamönnum sem bjuggu þar við mjög ómannúðlega aðstæður. Þeirra á meðal var Al Capone sem sat þar inni árið 1929. Sjálfur sagðist hann hafa upplifað reimleika í húsinu þegar hann dvaldi þar. Margir andar eru sagðir á sveimi á göngum og í turnum hússins, þar á meðal fangavörður sem enn stendur sem stífast í stöðu sinni sem hann átti að ljúka fyrir óralöngu síðan. Flestar frásagnirnar eru af dauðadeildinni þannig að þar skuluð þið verja mestum tíma ef þið viljið rekast á einhverja drauga fangelsisins. Það eru fáir staðir sem hafa jafn skelfilega sögu ofbeldis, eymdar og dauða en þetta hús. Það er auðvelt að komast húsinu en það er í miðborg Philadelphia.
5. The Myrtles Plantation, St. Francisville, Louisiana
David Bradford herforingi byggði þetta glæsilega heimili á plantekru sinni árið 1796 og allt að tíu morð eru talin hafa verið framin hér í gegnum tíðina. Sagan segir að illræmdur íbúi í húsinu sem kallaður er Woodruffe dómari hafi skorið eyrað af Chloe, þrælakonu nokkurri, í refsiskyni fyrir að hafa farið inn á svæði sem henni var meinaður aðgangur. Í hefndarskyni eitraði Chloe fyrir börnum Woodruffe sem leiddi til þess að hún var hengd í tré utan við húsið. Chloe hefur oft sést í námunda við húsið og hefur meira að segja náðst á mynd þar sem hún stendur við húsið með túrban vafinn um höfuðið. Börn Woodruffes hafa líka sést að leik á veröndinni, á göngunum í borðstofunni þeirra og jafnvel í ljósakrónunum. Einnig eru frásagnir af franskri konu sem flakkar milli herbergja, stúlku með sítt krullað hár sem svífur um leikherbergið, dansandi kona í svörtu pilsi og kona sem fer upp stigann með kerti í hendi. Auk þess hefur heyrst píanótónlist þegar enginn var að spila, hurðir skellast og fótatak. Núna er húsið gistiheimili þannig að hægt er að upplifa draugaganginn á næturna af eigin raun. Baton Rouge er næsta borg við húsið en New Orleans er næsti alþjóðlegi flugvöllur.
4. Bell nornahellirinn í Tennessee
Á þessum afskekkta stað í Tennessee lifir skelfileg saga um álög sem þar ríkja. Í upphafi 19. aldar fóru undarlegir hlutir að henda hinu annars velmegandi Bell fjölskyldu. Sagt er að þetta hafi byrjað eftir að John Bell skaut undarlegt dýr sem var með líkama hunds en höfuð af kanínu. Önnur saga hermir að norn að nafni Kate Batts og hafði verið nágranni Bell hjónanna hafi í lifanda lífi ofsótt fjölskyldu vegnu deilumála sem komu upp. Draugur hennar er sagður berja húsið að utan, sparka í fólk og klóra það, rífa í hár og hvísla. Andrew Jackson hershöfðingi sem heimsótti staðinn er sagður hafa sagt að hann vildi frekar berjast einsamall við allan breska herinn heldur að eiga við Bell nornina. John Bell er sagður hafa dáið eftir að nornin eitraði fyrir honum. Nornin er sögð hafa fylgt afkomendum John Bell og elt þá í bæði þrælastríðið og báðar heimstyrjaldirnar. Sagt er nornin hafist við í helli á landareigninni og hafa undarlegar verur sést þar á ferli. Skrýtin hljóð og ljós hafa sést, óútskýrður hlátur, grátur og tal. Aðrir hafa heyrt raddir barna og erfitt hefur reynst að taka myndir á staðnum. Núverandi eigendur bjóða upp á ferðir um húsið og hellinn og leyfa ýmsar rannsóknir á staðnum. Næsti flugvöllur er í Nashville.
3. Gettysburg vígvöllurinn
Blóðugasta orrusta borgarastríðsins í Bandaríkjunum var háð á hinum sögufræga vígvelli Gettysburg. Meira en 50.000 manns létu lífið á þeim þremur dögum sem orrustan tók og hið geigvænlega ofbeldi, hörmungar og þjáningar deyjandi hermanna á vígvellinum hefur sett sitt mark á þá anda sem þar ríkja í dag. Andar hermanna úr báðum herdeildum reika enn um svæðið og hafa sést mjög víða á vellinum. Hermenn hafa sést framfylgja skipunum herforingjanna og margar sögur eru af myndavélum sem ekki virka, undarlegum lyktum, fótataki, skothvellum og trommuslætti. Þú gætir jafnvel endurupplifað atburðina á staðnum þó að ekkert slíkt hafi verið sett á svið! Það eru margir alþjóðlegir flugvellir nálægt Gettysburg sem er ekki langt frá Washington D.C., þannig að auðvelt er að komast þangað.
2. Villisca - hús axarmorðingjans
Þann 9. júní árið 1912 áttu sér stað skelfilegir atburðir í þessu húsi. Grunlaus fjölskyldan kom heim úr kirkju eitt kvöldið og lagðist til hvílu óafvitandi af axarmorðingjanum sem faldi sig á háaloftinu. Þegar allir voru sofnaðir kom morðinginn fram og myrti alla á hrottafenginn hátt á meðan þau sváfu. Alls lágu 8 manns í valnum þegar yfir lauk, þar af 6 börn. Húsið stóð ósnert eftir þessa skelfilegu viðburði allt fram til ársins 1990 þegar húsið var gert upp og breytt í safn. Síðan þá hafa verið ýmsar frásagnir um hluti á hreyfingu, hvísl og hlátur, skelli, hlutti sem detta og börn sem sjást að leik. Mikil neikvæð orka er í húsinu, og þá sérstaklega á háloftinu. Fólk kemur oft viti sínu fjær úr þessu ofsótta húsi. Ef þú trúir ekki á slíkt, þá geturðu látið á að reyna. Það er boðið upp á að gista í húsinu. Húsið er í um klukkutíma fjarlægð frá Omaha, Nebraska.
1. Waverly Hills Sanitorium
Þó mikill dauði og hörmungar hafi fylgt mörgum af þeim stöðum sem þegar hafa verið nefndir, þá hafa líklegast flestir þjáðst og dáið á þessum spítala í Louisville, Kentucky. Talið er að 63.000 manns hafi látið hér lífið. Spítalinn var byggður árið 1926 til þess að berjast við berklana sem þá herjuðu á Bandaríkjamenn líkt og Íslendinga. Læknavísinin voru skammt á veg komin og meðferðin takmörkuð. Sjúklingarnir voru oft notaðir í tilraunir sem allt niður í 5% lifðu af. Þegar berklar voru loks sigraðir um 1960 var heimilinu breytt í hjúkrunarheimili fyrir aldraða og fara sögur af slæmum aðbúnaði og slæmri meðhöndlun á vistmönnum. Síðan þá hefur Waverly Hills hnignað ört og stendur nú uppi sem innantóm höll hins yfirskilvitlega. Meðal þeirra afturgangna sem sögur fara af á Waverly Hills er lítil stúlka með engin augu og lítill strákur sem sjást að leik í húsinu, líkvagn sést aka upp veginn að húsinu, gömul kona hleypur út um framdyrnar öskrandi, börn hlaupa um þakið, hjúkrunarkona hefur sést á gangi í herbergi 502, raddir heyrast í undirgöngunum og skuggar sjást á reiki í sölunum. Einnig hafa sést ljós í húsinu þó ekkert rafmagn sé á því, hurðum er skellt, lágværar jafnt sem háværar raddir heyrast og kaldir blettir eru í húsinu. Ef þið viljið upplifa þennan skelfilega stað, þá er áfangastaðurinn Louisville, Kentucky.
Sjálfur hef ég komið á þrjá af þessum stöðum sem taldir eru upp hér að ofan en enn engan drauginn séð, enda svo sem ekki eitt nótt á neinum þeirra. Hins vegar upplifði ég undarlega atburði á miðnætti eina sumarnótt við yfirgefinn kirkjugarð í Krákudal í Arnarfirði. Eflaust eru til ófáir staðir hér á landi þar sem vænta má undarlegra hluta og atburða ef fólk reynir að gista þar. Ef þið þekkið til einhverra slíkra, þá megið þið endilega lista þá í kommentunum hér að neðan.
Njótið hrekkjavökunnar
Hjörtur
ps. munið að skrá ykkur sem fans á Facebook til að fá þar uppfærslur á nýjum sögum, ráðum og góðum tilboðum.